Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1338, 141. löggjafarþing 583. mál: Þjóðminjasafn Íslands (samstarf við Háskóla Íslands).
Lög nr. 57 9. apríl 2013.
Þjóðminjasafnið er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag.
Stofnunin á samstarf við aðrar stofnanir á háskólastigi samkvæmt sérstökum samningum.
Samstarf Þjóðminjasafns Íslands og Háskóla Íslands skal byggjast á sérstökum samstarfs- og þjónustusamningi um starfstengsl, fjárhagsleg samskipti og skipan sameiginlegra starfa.
Safninu er heimilt að veita öðrum háskólum landsins þjónustu eftir því sem nánar er ákveðið í gagnkvæmum þjónustusamningum við einstaka háskóla.
Rannsóknarstaða tengd nafni dr. Kristjáns Eldjárns.
Við Þjóðminjasafn Íslands skal vera sérstök rannsóknarstaða kennd við dr. Kristján Eldjárn.
Þingskjal 1338, 141. löggjafarþing 583. mál: Þjóðminjasafn Íslands (samstarf við Háskóla Íslands).
Lög nr. 57 9. apríl 2013.
Lög um breytingu á lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140/2011 (samstarf við Háskóla Íslands).
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 1. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Þjóðminjasafnið er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag.
2. gr.
Við 3. gr. laganna bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Stofnunin á samstarf við aðrar stofnanir á háskólastigi samkvæmt sérstökum samningum.
Samstarf Þjóðminjasafns Íslands og Háskóla Íslands skal byggjast á sérstökum samstarfs- og þjónustusamningi um starfstengsl, fjárhagsleg samskipti og skipan sameiginlegra starfa.
Safninu er heimilt að veita öðrum háskólum landsins þjónustu eftir því sem nánar er ákveðið í gagnkvæmum þjónustusamningum við einstaka háskóla.
3. gr.
Á eftir 3. gr. laganna kemur ný grein, 3. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 26. mars 2013.